Árið er 2013 og þetta blogg er ennþá hér og í fullum gangi (á tveggja ára fresti). Heimurinn endaði sem betur fer ekki 2012 og ég gleymdi að halda minimalíska matarboðið sem ég var greinilega að undirbúa 2011. E´g var að setja inn athugasemd við einhverja útópíska hugmynd um að láta gamalt fólk rækta lífrænt grænmeti á Húsavík inná heimasíðu einhvers annars þegar þessi prófílmynd dúkkaði upp og ég að sjálfsögðu eina ferðina enn búin að gleyma tilvist þessa annars fína bloggs. Núna erum við Eric í smá pásu frá New York og erum í tveggja mánaða vinnu/náttúruferð fyrir utan Seattle. Ég er búin að vera að lesa Íslensku blöðin og það er tvennt sem vekur athygli mína.
Í dag kom í ljós eitthvað sem var flestum augljóst. Sjálftökuflokkarnir aetla að gefa engum pening öðrum en sjálfum sér og kirkjunni. Ekkert heilbrigðiskerfi, engin menntun, engin list, engin Evrópa, ekkert fyrir gamla og aumingja. Bara afsláttur fyrir kvótakónga og bankakalla. Hér kemur smá samsæriskenning: Í Bandaríkjunum er eina fólkið sem kýs yfir sig hægra sinnaða 1prósentið ómenntað og trúað föðurlandselskandi lið sem býr úti á landi. Ef að þeim tækist að gera fleiri íslendinga ómentaða og trúaða með tortryggni gagnvart erlendum áhrifum þá fyrst yrðu þessir hægri flokkar í góðum málum með traustan og forheimskaðan kjósendahóp að eilífu. Núna er of stór hópur til vandræða, vel menntað fólk sem að kann að reikna og skilur mikilvægi menningar (greinlega ekki alveg nóg fyrst þeir komust aftur til valda).
Annað sem átti sér stað í dag var að eitthvað stelpugrey sem sagði að Gill.. væri nauðg.. var dæmd til að greiða milljón krónur í máls og skaðabætur! Þetta finnst mér mjög ósanngjarnt eftir allan viðbjóðinn sem hann hefur látið út úr sér um hitt og þetta fólk. Mín lausn á öllu þessu hörmungarmáli er sú að það verði sett í lög að hver sá sem nefni Gillz á nafn, kommentar eða bregst á nokkurn hátt við einu eða neinu sem hann gerir þurfi jafnframt að borga sekt. Það gengur einnig yfir hann sjálfan.
Við þurfum að losna við þennan gaur úr öllum fjölmiðlum punktur
Ég elska Ísland og sakna alltaf náttúrunnar, vinanna og fjölskyldunnar en þegar ég er þar þá bilast ég reglulega yfir póltík og hnakkalágmenningu. Best að slökkva bara á netinu svo að maður fari sér ekki á voða með blóðþrýstinginn uppúr öllu valdi að lesa um einhverja hálfvita sem eru að gera allt vitlaust í öðru tímabelti.
fimmtudagur, 3. október 2013
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)