2011 góðan daginn, bara eitt ár eftir í heimsendaárið 2012. Í mörg ár hef ég sagt að thann 12.12.2012 klukkan 12 aetli ég að halda matarboð og bjóða öllum sem ég elska heim til mín. Thannig getum við öll verið saman thegar að Maya geimverurnar snúa aftur til jarðar eða thegar að okkar sólkerfi sogast inn í miðju alheimsins eða thegar að allir geta skyndilega séð nýjar víddir með thriðju augunum sínum eða thegar að heimurinn skyndilega líður undir lok og engin verður eftir til að skilja hvernig thað átti sér stað. Eða thegar að nákvaemlega ekki neitt gerist, nema thað að eitthvað gamallt tímatal núllstillist. Raunsaeja morgunblaðsfólkið fagnar thví ákaft að ekkert hafi breyst. Reyndar thá langar mig kannski ekki að bjóða öllum sem ég elska, mig langar bara að bjóða 12 manns. Halda thessu stílhreinu og minimalísku. Hippar og jarðbundnir í jöfnum hlutföllum.
Ég mun síðan vonandi skrifa um thað hér hvernig boðið lukkaðist í janúar 2013. Miðað við hve tíminn er búinn að líða hratt undanfarin ár thá er thetta bara allt að fara að bresta á.
föstudagur, 14. janúar 2011
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)